Hvers vegna komst frjálshyggjan jafnlangt og raun hefur borið vitni? Hvernig tókst henni að gegnsýra allar stofnanir þjóðfélagsins og valda að lokum þeim efnahagslegu hörmungum sem nú ganga yfir?
Því hún veit sem er að þeir sem hafa valdið á orðunum hafa valdið á hugmyndunum. Og undanfarinn áratug hafa frjálshyggjumenn og kapítalistar eignað sér orðræðuna með góðum árangri.
Sjálfur lá ég alveg helslakur uppi í sófa einhverntímann síðasta vor og bölvaði skilafrestinum á Vefritinu sem var seinna sama kvöld. „Það er ekki yfir neinu að kvarta,“ sagði ég við sjálfan mig; „ég hef það alveg ógeðslega fínt – bjór allar helgar, matur í frystinum, bækur í hillunum, íbúð með hóflegum afborgunum, en samt er nóg eftir í ferðasjóð eða hvað sem er þegar mánuðinum lýkur. Ég nenni ekki að skrifa enn eina týpíska vinstrimannagreinina þar sem ég kvarta undan því hvað allt sé ömurlegt. Ég nenni ekki að spilla partíinu. Ég nenni ekki að prumpa með í fýlukórnum.“ Svo sendi ég ritstjóranum póst um að það væri svo ógeðslega mikið að gera hjá mér og að ég gæti ekki skilað að þessu sinni.
Vinstrimaður með markaðslausnir
Það hefur ekki þótt sérstaklega gæfulegt að segjast vera vinstrisinnaður á undanförnum árum. Og ef maður viðurkenndi, jú, að vera félagshyggjuþenkjandi, þá var maður samt að sjálfsögðu gríðarlega frjálslyndur – hlynntur markaðslausnum, hámörkun hagnaðar, hagkvæmum rekstri, fannst mikilvægt að ríkið stæði að grundvallarþjónustu en væri ekki með puttana í öðru en löggæslu og eftirliti, félagsþjónustu og heilbrigðiskerfinu. Það má segja að munurinn á vinstri mönnum og hægri mönnum hafi fyrst og fremst snúist um hversu mikil einkavæðing ætti að vera í heilbrigðiskerfinu og á sviði félagsþjónustu, hvort raforkan úr Kárahnjúkum væri seld á nógu háu verði og hversu miklum fjármunum ætti að veita í stríðsrekstur í Afganistan og Írak (furðulegast var að hægrimenn vildu og vilja áfram stríð – dýra framkvæmd á vegum ríkisins sem ber þó engan arð.)
Því ef maður steig fram og orðaði skuggahliðar góðærisins, ég tala nú ekki um ef maður sagðist vera sósíalisti, eða kommúnisti, eða marxisti, þá var maður ekki tekinn alvarlega; heldur settur í hóp með Snarrót eða Saving Iceland eða annarri and-Coca Cola hreyfingu, afgreiddur sem klikkhaus, sem einhver úr tengslum við veruleikann, einhver sem vildi snúa aftur á miðaldir. Jafnvel ég, sem hef á ákveðnum tímabilum viljað líta á mig sem róttækan vinstrimann, vildi ekki láta flokka mig svona. Það segir kannski sitt um meinta róttækni mína. En það segir kannski enn meira að í hópum vinstrimanna sem ég umgekkst, t.d. í háskólapólitík – þá þótti ég manna róttækastur.
Barnaleg komment?
Ég minnist þess þegar einn pennanna á Vefritinu var á bloggi sínu að furða sig á árgangi Stúdentablaðsins veturinn 2005-2006. Hann brást svona við ummælum um að veldi Vesturlanda væri reist á arðráni og þrælablóði: „Æji, kræst, ég nenni þessu ekki.“ En eins og fram kom í sama pistli þarf ekki mikla sagnfræðiþekkingu til að átta sig á því að þannig er það sögulega; og maður þarf að vera ansi blindur gagnvart umheiminum til að sjá ekki að þannig er það ennþá. Og svo hélt viðkomandi áfram: „Þessi barnalegu “auðhyggju” og “kapítalista” komment eru … frekar hæf í framhaldsskóla málgagni frekar en í blaði, sem er gefið útaf nemendum í menntastofnun, sem er að reyna að vera merkileg og þykist vera þess verð að vera meðal 100 bestu í heimi.“
Ég er ekki að gagnrýna þennan penna sérstaklega; skrif hans eru bara einstaklega afhjúpandi fyrir stemmninguna sem hefur verið við lýði undanfarin ár: Kapítalisminn er eina kerfið. Auðhyggja er ekki til. Arðrán er ekki til. Frelsi er sama og kapítalismi. Sósíalismi er hlægilegur. Kommúnistar eru heimskingjar. Siðferði á ekki heima í umræðu um viðskipti. Fjárfestingastrákarnir eru klárustu og bestu synir Íslands síðan Snorri Sturluson var og hét.
Hvernig áttu vinstrimenn að koma sínu að við þessar aðstæður?
Bankanum þínum er sama um þig
En nú virðast augu fólks kannski smám saman vera að opnast. Róttækir hópar eins og þeir sem ég nefndi hér að ofan, róttæk málgögn og róttækar heimildarmyndir og bækur hafa verið að segja okkur af viðbjóði kapítalismans um víða veröld um nokkra hríð en það er eins og enginn hafi verið að hlusta. Ekki fyrr en við fengum aðeins að kenna á honum sjálf. Ekki fyrr en þú gerir þér grein fyrir því að þú ert öreigi – að vísu með sumarfrí og kaffipásu - en öreigi engu að síður; arðrændur af kapítalistum á 20 milljón króna bílum í boði fyrirtækisins, með annað eins í mánaðarlaun (því ábyrgðin er svo mikil), og ef það kemur babb í bátinn verða skuldir þeirra bara afskrifaðar eða lögunum breytt.
Í ljós kemur að þrátt fyrir allar fallegu auglýsingarnar þá voru það veggkrotararnir sem höfðu rétt fyrir sér: Bankanum þínum er sama um þig.


VIAGRA ONLINE - CHEAP VIAGRA - VIAGRA GENERIC - VIAGRA - VIAGRA ONLINE BUYING NOW
http://www.blogs.medextreme.com/image/buying_viagra.jpghttp://www.blogs.medextreme.com/image/buying_levitra.jpghttp://www.blogs.medextreme.com/image/buying_cialis.jpg
VIAGRA WITHOUT PRESCRIPTION - VIAGRA ONLINE WITHOUT PRESCRIPTION
BUY NOW VIAGRA
http://www.refugeenet.org/foro/viewtopic.php?p=2197&sid=93a5690bfd8068c6304cad3b5ba47c62
VIAGRA BUYING
VIAGRA BUYING WITHOUT PRESCRIPTION - VIAGRA WITHOUT A PRESCRIPTION
BUY CHEAP VIAGRA
http://www.caraudio.com/forum/showthread.php?p=6211419
CHEAP VIAGRA ON-LINE
ONLINE VIAGRA NO PRESCRIPTION - ONLINE BUYING VIAGRA WITHOUT A PRESCRIPTION
BUYING VIAGRA
VIAGRA BUY NOW
ONLINE BUYING VIAGRA WITHOUT PRESCRIPTION - BUYING VIAGRA NO PRESCRIPTION NEEDED
VIAGRA CHEAPEST
BEST PRICE BUYING VIAGRA
VIAGRA BUYING NO PRESCRIPTION NEEDED - VIAGRA BUYING NO PRESCRIPTION
VAGRA ONLINE CHEAPEST BUYING
CHEAP VIAGRA ON-LINE
VIAGRA ONLINE NO PRESCRIPTION - ONLINE BUYING VIAGRA WITHOUT A PRESCRIPTION
BUY CHEAP VIAGRA