Lestu nýjustu greinarnar á Vefritinu:

Orð eru til alls fyrst. Markmið Vefritsins er að stuðla að uppbyggilegri umræðu um samfélagsmál.

Á Vefritið skrifar fólk sem vill samfélag sem er í senn réttlátt og skilvirkt; að það sé byggt á menntun, frjálsu atvinnulífi og jöfnum tækifærum, virðingu fyrir manneskjunni og umhverfi hennar.

Við vonumst til þess að Vefritið verði vettvangur ferskrar umræðu sem situr ekki föst í skotgröfum en er spyrjandi og leitandi í umfjöllun um málefni líðandi stundar.

Vefritið tengist hvorki stjórnmálaflokkum né félagasamtökum. Efnistök og skrif eru á ábyrgð höfunda og kunna þau að vera jafn mörg og misjöfn og þau sem að vefritinu koma.

Ritstjórn Vefritsins skipa:
Agnar Freyr Helgason
Anna Tryggvadóttir
Eva Bjarnadóttir
Helga Tryggvadóttir
Hrafn Stefánsson
Pétur Ólafsson
Styrmir Goðason
Þórir Hrafn Gunnarsson

Hægt er að hafa samband við ritstjórnina með því að senda tölvupóst á vefritid hjá vefritid.is.

Vefritið hóf göngu sína föstudaginn 13. október 2006. Stofnendur Vefritsins voru Agnar, Anna Pála, Eva, Grétar, Helga, Hrafn, Magnús Már, Pétur, Valgerður og Þórir.

Útlit Vefritsins er byggt á Magazeen-þemanu og er vefurinn knúinn af WordPress vefumsjónarkerfinu.